08.10.2015

Arion banki kaup­ir Vörð tryggingar af BankN­ordik

Eins og áður hefur verið greint frá, hefur eigandi Varðar trygginga, færeyski bankinn BankNordik, markað sér þá stefnu að takmarka umsvif sín utan Færeyja við bankastarfsemi. Í tengslum við þá stefnumörkun var greint frá því að hlutabréf bankans í Verði yrðu seld.

Á síðustu vikum hefur BankNordik átt í viðræðum við Arion banka um kaup hins síðarnefnda á Verði. Viðræðum er nú lokið en fyrr í dag gengu þessir aðilar frá skilyrtum kaupsamningi sín á milli. Arion banki kaupir nú 51% hlut í Verði en þar sem hömlur eru á viðskiptum með eftirstandandi hluti hafa aðilar ákveðið að gefa út kaup- og sölurétt á útistandandi hlutum sem heimila Arion banka að festa kaup á hlutunum þegar hömlunum hefur verið lyft, eigi síðar en á árinu 2017.

Verðmæti félagsins er í viðskiptunum í heild sinni metið á 37.300.000 evrur.

Arion banki hefur hug á að efla enn frekar vöxt og þróun Varðar á íslenskum tryggingamarkaði, bæði hvað varðar viðskipti við einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Engar verulegar breytingar eru fyrirsjáanlegar á daglegum rekstri og breytt eignarhald ætti ekki að hafa áhrif á viðskiptavini félagsins.

“Vörður hefur verið hluti af samstæðu BankNordik síðan 2009 og á því tímabili hefur félagið aukið markaðshlutdeild sína verulega og bætt arðsemi. Við erum að selja mun sterkara félag en við keyptum árið 2009 og ég er handviss um að Arion banki muni halda áfram að styðja við þessa jákvæðu þróun” segir forstjóri BankNordik Árni Ellefsen.

“Það er okkur mikilvægt að geta boðið viðskiptavinum okkar alhliða fjármálaþjónustu. Það gerum við gegnum Arion banka sem og dótturfélög bankans. Samspil banka- og tryggingaþjónustu er vel þekkt víða um heim og ekki síst á Norðurlöndum. Tryggingar eru, og hafa verið, mikilvægur þáttur í okkar kjarnastarfsemi og með kaupunum á Verði erum við að bæta skaðatryggingum við þjónustuframboð bankans. Vörður er öflugt og vaxandi fyrirtæki með sterkt vörumerki sem við höfum hug á að efla enn frekar í framtíðinni” segir bankastjóri Arion banka, Höskuldur H. Ólafsson.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki viðkomandi yfirvalda og er gert ráð fyrir að salan á 51% verði fullfrágengin innan fárra mánaða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira