17.10.2016

Arion banki leið­réttir ný neyt­endalán vegna rangr­ar vísi­tölu neyslu­verðs

Í mars urðu Hagstofunni á mistök við útreikning á neysluverðsvísitölunni sem leiðrétt voru nú í september. Hagstofan leiðrétti aðeins septembergildi vísitölunnar en ekki eldri gildi. Hefði þessi leiðrétting ekki komið til, hefði mánaðarbreyting vísitölunnar í september verið 0,21% í stað 0,48%. Mismunurinn er 0,27 prósentustig.

Almennt hafa þessi mistök Hagstofunnar hverfandi áhrif á viðskiptavini bankans og í raun hafa þau jákvæð áhrif á viðskiptavini með eldri verðtryggð lán. Áhrifin eru hins vegar neikvæð á ný neytendalán sem voru tekin þegar vísitalan var ekki rétt, en stærsti hluti þeirra er íbúðalán. Arion banki mun því taka tillit til leiðréttingar Hagstofunnar um næstu mánaðarmót og leiðrétta vísitölubundna höfuðstólshækkun þeirra neytendalána sem tekin voru þegar vísitalan var röng. Þessi aðgerð er umfram skyldur bankans en við teljum það sanngirnismál að neytendur, sem tóku lán á þessu tímabili, beri ekki kostnað af þessum mistökum Hagstofunnar.

Leiðréttingin mun eiga sér stað í nóvember og verða þeir viðskiptavinir sem leiðréttingin nær til upplýstir sérstaklega um hana og áhrif hennar á lán þeirra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira