27.08.2015

Arion banki lýk­ur út­boði á sér­tryggð­um skulda­bréf­um

Arion banki hf. lauk í gær, miðvikudaginn 26. ágúst, útboði á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa sem eru óverðtryggð. Skuldabréfin eru til sjö ára og bera 6,50% fasta vexti.

Í heild bárust tilboð upp á 4.300 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir samtals 4.200 milljónir kr. á ávöxtunarkröfunni 7,0%.

Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi í byrjun september.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira