20.04.2015

Arion banki og DNB Bank fjármagna kaup Ramma hf. á nýj­um frysti­tog­ara

Rammi hf. á Siglufirði hefur samið við Arion banka og DNB Bank um fjármögnun á smíði nýs frystitogara sem áætlað er að verði afhentur veturinn 2016/2017 en félagið gerði nýverið samning við tyrknesku skipasmíðastöðina Tersan í Tyrklandi, um smíði skipsins. Nýja skipið munu lækka meðalaldur skipa Ramma verulega.

Samningurinn tekur einnig til langtímafjármögnunar á skipinu. Lánveitingin nú nemur um 35 milljónum evra eða rúmlega 5 milljörðum króna.

Þetta er í annað skipti sem Arion banki og DNB Bank vinna saman að fjármögnun fjárfestinga í íslenskum sjávarútvegi, en samvinna bankanna í þessu verkefni leiðir til verulegrar lækkunar á vaxtakjörum Ramma.

Meðfylgjandi er tölvugerð mynd af hinum nýja frystitogara.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira