08.06.2015

Arion banki stækk­ar tvo flokka sér­tryggðra skulda­bréfa

Arion banki hf. lauk á föstudag útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Íslandi.

Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 600.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,31% og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 3.120.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,45%.

Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á næsta útboði verðtryggðra skuldabréfa í september.

Arion banki nýtir sértryggð skuldabréf til fjármögnunar á íbúðalánum til einstaklinga. Arion banki veitir nú verðtryggð íbúðalán á 3,90% föstum vöxtum til fimm ára og 3,85% breytilegum vöxtum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira