21.01.2016

Arion banki styrk­ir hjálp­ar­starf

Eins og síðastliðin ár styrkti Arion banki Hjálparstarf kirkjunnar, Rauða krossinn á Íslandi og Mæðrastyrksnefndir víða um land fyrir jólin. Hver samtök fengu tvær milljónir króna til að nýta í jólaúthlutanir á vegum samtakanna eða samtals sex milljónir króna.

Helga G. Halldórsdóttir fjáröflunarfulltrúi Rauða krossins:

,,Framlag Arion banka til fólks sem þarfnast aðstoðar fyrir jólin skiptir miklu máli í starfi Rauða krossins. Á landsvísu var tæplega helmings aukning á umsóknum um jólaaðstoð árið 2015 samanborið við 2014.“

Á meðfylgjandi mynd má sjá Helgu G. Halldórsdóttur fjáröflunarfulltrúa Rauða krossins og Hildi Ottesen Hauksdóttur frá Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira