03.02.2016

Bein­greiðslu­leikur Arion banka

Beingreiðsluleikur Arion banka hófst í júlí og stóð yfir til áramóta. Markmið leiksins var að viðskiptavinir skrái reikningana sína í beingreiðslu og njóti þeirra kosta sem því fylgir. Reikningar sem eru skráðir í beingreiðslu eru alltaf greiddir á réttum tíma og því ekki hætta á dráttarvöxtum, svo ekki sé talað um aukin þægindi fyrir viðskiptavini.

Allir sem skráðu reikninga í beingreiðslu á meðan á leiknum stóð áttu möguleika á að vinna iPhone 6. Því fleiri reikningar sem voru skráðir því meiri líkur á að vinna.

Vinningshafi í beingreiðsluleik Arion banka í desember var Stefán Þórsson en hann er viðskiptavinur í útibúinu í Hafnarfirði. Hann skráði reikning í beingreiðslu og hlaut iPhone 6 í verðlaun.

Við óskum Stefáni innilega til hamingju með nýja símann og vonum að vinningurinn komi sér vel.

Á myndinni eru Einar Örn Ævarsson útibússtjóri í Hafnarfirði og vinningshafinn Stefán Þórsson.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira