16.10.2015

Breyt­ingar á vöxt­um íbúða­lána

Arion banki hefur gert breytingar á vöxtum íbúðalána. Vaxtalækkanir hafa áhrif á verðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum og föstum vöxtum til fimm ára. Þá lækka fastir vextir á óverðtryggðum lánum til þriggja og fimm ára en vextir á óverðtryggðum breytilegum vöxtum hækka.

Helstu breytingar eru:

Verðtryggð lán

  • Breytilegir vextir verða 3,65% en voru 3,85% (tekur gildi 25. október 2015)

  • Fastir vextir til fimm ára eru nú 3,80% en voru 3,90%

Óverðtryggð lán

  • Fastir vextir til þriggja ára verða 7,15% en voru 7,40%

  • Fastir vextir til fimm ára verða 7,25 en voru 7,50%

  • Breytilegir vextir verða 7,05% en voru 6,60%

Vaxtatöflu Arion banka má finna í heild sinni hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira