15.04.2015

Bygging hót­els við Austur­höfn hefst í haust

Uppbygging Hörpu og þróun byggðar á Austurhafnarsvæðinu er mikilvægur þáttur í frekari uppbyggingu ferðaþjónustu hér á landi og að festa Ísland í sessi sem áfangastað fyrir ráðstefnu- og menningarviðburði á alþjóðavísu.

Samningar hafa nú náðst um kaup bandaríska fasteignafélagsins Carpenter & Company á byggingarétti fyrir hótel á Austurbakka 2 við Reykjavíkurhöfn (Hörpureitur) af fyrri eigendum sem Arion banki fer fyrir. Carpenter & Company mun verða leiðandi fjárfestir í verkefninu, sem jafnframt mun fela í sér fjárfestingartækifæri fyrir innlenda fjárfesta.

Carpenter & Company mun þannig leiða byggingu 250 herbergja fimm stjörnu hótels á lóðinni og í framhaldinu fela rekstur þess í hendur leiðandi alþjóðlegs hótelrekstaraðila. Samningar um slíkt eru á lokastigi og mun fljótlega verða tilkynnt um niðurstöðu þess ferlis.

Arion banki vinnur áfram að fjármögnun verkefnisins og lánsfjármögnun, meðal annars með því að fá fleiri fjárfesta að verkefninu. Einnig verður áfram unnið að þróun íbúða- og verslunarhúsnæðis á umræddum reit við Hörpu.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Richard L. Friedman forstjóri Carpenter & Company kynntu samkomulagið á blaðamannafundi í Hörpu í gær.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira