20.09.2016

Cy­ber og Tri­logia spila á fimmtu tón­leik­um KEX og KÍTÓN í sam­starfi við Arion banka

Hljómsveitirnar Cyber og Trilogia koma fram á fimmtu tónleikunum í tónleikaröðinni KEX+KÍTÓN í samstarfi við Arion banka sem haldnir verða á KEX Hostel á morgun, 21. september, kl. 21.00.

Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 1.500 krónur og einungis er hægt að fá miða á staðnum. Nánari upplýsingar um tónleikana má sjá hér.

Cyber
Cyber var upprunalega stofnuð sem thrash metal- og diskó-sveit árið 2012 en er í dag rapp-dúó skipað þeima Bleach Pistol (Salka Valsdóttir) og JuniorCheese (Jóhanna Rakel). Cyber er nefnt eftir varalit sem þær stöllur notuðu báðar á unglingsárum.
Cyber gáfu nýverið út sjö laga þröngskífuna Crap en á henni vinna þær lög með tónlistarmönnum á borð við dj. flugvél og geimskip og russian.girls og hefur hún að geyma lög á borð við ,,BARNAEFNI" og ,,VEGAS". Cyber-stöllur eru báðar meðlimir Reykjavíkurdætra.

Trilogia
Hljómsveitin Trilogia var stofnuð á haustmánuðum 2014 og hefur síðan samið lög og texta, æft og úfært og komið fram á nokkrum tónleikum. Hljómsveitin spilar rafskotna popptónlist sem teygir anga sína aftur í breska trip-hop 9. áratugarins. Trilogiu skipa Finnbjörn Benónýsson (hljóðgervlar, bassi, gítar og söngur) og Fríða Dís Guðmundsdóttir (söngur og hljómborð). Saman semja þau öll lög og alla texta.

Hugmyndin að baki tónlistinni liggur í hljómsveitarnafninu sjálfu, Trilogia, eða þríleikur, þ.e. hljómsveitin semur þrjú lög sem fléttast saman á einn eða annan hátt. Þríleikirnir þjóna mismunandi tilgangi og myndun þeirra er margbreytileg. Á meðan sumir taka á tilfinningum og leitast við að skapa ákveðið andrúmsloft eru aðrir líkari smásögum í þremur hlutum sem rekja ákveðna atburðarás. Hver þríleikur hefur sinn einkennislit sem afmarkar efnið; blái þríleikurinn, sá rauði o.s.frv.

KÍTÓN stendur fyrir konur í tónlist og er tilgangur félagsins er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal kvenna í tónlist. Þeim tilgangi er náð með auknum sýnileika, viðburðum og stöðugu samtali við tónlistarkonur á Íslandi. Með tilstuðlan KÍTÓN er umræðan um stöðu kvenkyns laga- og textahöfunda jafnt sem flytjenda orðin fyrirferðameiri en hún hefur verið undanfarna áratugi. Félagið fer þvert á allar tónlistarstefnur, strauma, bakgrunn, menntun og jafnvel má sjá konur í félaginu sem starfa við tónlist sem umboðsmenn eða hafa atbeini eða starfa af tónlistargeiranum. Félagið fer ört stækkandi og eru nú um 246 félagskonur skráðar. Með samstarfi við Kex og KÍTÓN vill Arion banki styðja við íslenskar tónlistarkonur.

Hér má sjá myndbönd frá fyrri tónleikum úr tónleikaröðinni:

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira