04.02.2015

Eyrir Sprot­ar lýk­ur fjármögnun

Sprota og vaxasjóður Eyrir Invest, Eyrir Sprotar slhf., hefur lokið fyrsta áfanga fjármögnunar með þátttöku öflugra fagfjárfesta. Eyrir Sprotar hafa nú þegar fjárfest í nokkrum spennandi nýsköpunarverkefnum og fjölmörg verkefni til viðbótar eru í skoðun hjá sjóðnum.

Eyrir Sprotar er rekinn af Eyrir Invest í samstarfi við Arion banka, en Eyrir og Arion banki eru stærstu hluthafar sjóðsins. Arion banki hefur stutt ríkulega við nýsköpunarumhverfið á Íslandi á undanförnum árum m.a. með því að skipuleggja frumkvöðlahraðalinn Startup Reykjavík og með öflugum stuðningi við frumkvöðla. Aðrir fjárfestar eru lífeyrissjóðir og fagfjárfestar. Að loknum fyrsta áfanga fjármögnunar er stærð Eyris Sprota 2,5 milljarðar króna. Sjóðurinn á enn í viðræðum við nokkra áhugasama fjárfesta um þátttöku og er gert ráð fyrir að seinni hluta fjármögnunar verði lokað fljótlega. Arctica Finance annaðist umsjón með fjármögnun Eyris Sprota.

„Það er mjög ánægjulegt að ljúka þessum áfanga í fjármögnun“, segir Örn Valdimarsson framkvæmdastjóri Eyris Sprota. „Við höfum verið að vinna í fjölmörgum áhugaverðum verkefnum undanfarna mánuði og fjármögnun sjóðsins gerir okkur kleift að fylgja þeim verkefnum enn betur eftir. Við væntum þess ennfremur að geta sagt frá fleiri nýjum fjárfestingum innan skamms.“

Þórður Magnússon, formaður fjárfestingaráðs Eyris Sprota, segir nýsköpunarumhverfi á Íslandi í dag afar frjótt og spennandi. „Umhverfið sem á undanförnum árum hefur verið byggt upp á Íslandi til stuðnings nýsköpun og sprotafyrirtækjum er afar vel heppnað til að byggja upp tæknilega hæfni þessara fyrirtækja. Hins vegar hefur skort fjármuni og getu til að byggja upp sölu og dreifingarkerfi erlendis. Þessi fjármögnun og fjármögnun inn í aðra sprotasjóði bætir úr brýnni þörf til að styðja við uppbyggingu fyrirtækja framtíðarinnar.“

„Arion banki hefur lagt ríka áherslu á að styðja við nýsköpun á Íslandi, m.a. í gegnum verkefnin Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík. Í gegnum þessi verkefni hefur Arion banki fjárfest í á fimmta tug nýsköpunarfyrirtækja. Okkur hefur hins vegar fundist vanta fjármögnunarkosti fyrir nýsköpunarfyrirtæki og því er sérstaklega ánægjulegt að koma að stækkun þessa sprota og vaxtasjóðs. Við höfum mikla trú á að þessi fjárfesting muni reynast bankanum arðsöm“, segir Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka hf.

Mikil reynsla í fjárfestingaráði

Í fjárfestingaráði Eyris Sprota sitja auk Þórðar, Hilmar Bragi Janusson, Kristín Guðmundsdóttir og Magnús Ingi Óskarsson. Hilmar er forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrum framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknarstarfs hjá Össuri hf. Kristín starfaði áður sem forstjóri og fjármálastjóri hjá Skiptum hf. og sem fjármálastjóri Granda hf. Magnús Ingi Óskarsson var einn stofnenda Calidris sem var selt til hugbúnaðarfyrirtækisins Sabre Airline Solutions árið 2010. Þórður Magnússon er stjórnarformaður Eyrir Invest hf. og hefur komið að uppbyggingu fjölmargra sprotafyrirtækja.

Auk þeirra hefur Eyrir Sprotar tengsl við marga aðra einstaklinga sem munu veita fyrirtækjum í eignasafni Eyris Sprota mikinn stuðning og aðhald. Þessir einstaklingar hafa allir mikla reynslu úr atvinnulífinu sem mun nýtast við tæknilega uppbyggingu og sölu og markaðsstarf þessara fyrirtækja. „Við væntum þess að árangurinn láti ekki á sér standa. Það eru mörg góð og spennandi tækifæri í nýsköpunargeiranum í dag, sem við hjá Eyrir Sprotum hlökkum til að fá tækifæri til að skoða betur á komandi mánuðum“, segir Þórður.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira