15.01.2015

Ferð til fjár – fyrsti þátt­ur í kvöld

Í kvöld kl. 20:05 hefjast sýningar á þáttunum „Ferð til fjár“ á RÚV, en alls verða sýndir sex þættir.

Um er að ræða skemmtilegan og öðruvísi þátt um fjármál með það markmið að bæta fjármálalæsi landsmanna. Fjallað er um fjármál einstaklinga og eru algengar ranghugmyndir um peninga, sparnað og eyðslu ræddar. Í þáttunum er meðal annars fylgst með fjölskyldu sem leyfir Mána Mar 13 ára syninum að yfirtaka fjármál heimilisins í mánuð. Máni Mar þarf að passa upp á að tekjur og útgjöld passi saman yfir tímabilið nýtur hann aðstoðar Ragnheiðar, útibússtjóra í aðalútibúi bankans Borgartúni 18, við að stýra fjármálum heimilisins þennan mánuðinn.

Handritshöfundar þáttanna eru þau Breki Karlsson, Baldvin Z og Steinunn Þórhallsdóttir. Umsjón er í höndum Helga Seljan en leikstjórar eru þeir Baldvin Z og Arnór P. Arnarson.
Frekari upplýsingar um þættina má einnig sjá á facebook síðu „Ferð til fjár“, https://www.facebook.com/ferdtilfjar.

Á meðfylgjandi myndum má sjá aðstandendur þáttanna á forsýningu fyrsta þáttarins sem fór fram í höfuðstöðvum bankans nú í vikunni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira