20.09.2016

Ferða­þjónustu­út­tekt Greining­ar­deild­ar Arion banka

Greiningardeild Arion banka kynnti í morgun árlega ferðaþjónustuúttekt sína. Greiningardeildin spáir því að ferðamönnum fjölgi um tæp 39% í ár, um 27% á næsta ári en að svo hægi á vextinum. Árið 2019 áætlar deildin að erlendir ferðamenn verði 2,7 milljónir. Spánni fylgir mikil óvissa og getur flugframboð, gengi krónunnar, innviðir ferðaþjónustunnar og aðrir þættir haft mikil áhrif. Brýnt er að fjárfesta í innviðum og nauðsynlegt er að ná samstöðu um gjaldtöku í ferðaþjónustu.

Ferðaþjónustuúttekt Greiningardeildar: Ferðamannalandið Ísland - Draumaland eða Djöflaeyja?
Sjá glærur frá morgunfundi

Helstu niðurstöður:

  • Greiningardeild Arion banka spáir að vöxtur í komum ferðamanna slái öll met í ár en að hægja taki síðan á vextinum. Spáin hljóðar upp á 2,2 milljónir ferðamanna á næsta ári og að fjöldinn fari upp í 2,5 milljónir árið 2018.

  • Vægi ferðaþjónustunnar í vergri landsframleiðslu og atvinnuvegafjárfestingu hefur farið vaxandi undanfarin ár. Út frá ólíkum mælikvörðum má ætla að landsframleiðslan væri um 4-8% lægri en hún er í dag ef ekki hefði komið til uppgangs í ferðaþjónustunni.

  • Sterkara gengi krónunnar hefur hingað til haft lítil áhrif á neyslu ferðamanna. Áhrifin eru þó sýnileg og gætu magnast upp ef gengi krónunnar styrkist enn frekar.

  • Neyslumynstur ferðamanna, dvalartími og dvalarstaðir er mjög mismunandi eftir þjóðernum. Slíkar upplýsingar geta verið gagnlegar þegar kemur að því að markaðssetja íslenska ferðaþjónustu og dreifa ferðamönnum í tíma og rúmi.

  • Afkoma í ferðaþjónustu hefur stórbatnað og fjárhagur er sterkari en áður fyrr. Litlar vísbendingar er að sjá um útlánabólu í ferðaþjónustu.

  • Nýting hótela hefur batnað sl. misseri víðast hvar á landinu. Verð gistingar í Reykjavík hefur hækkað um tæp 40% í evrum á þremur árum. Greiningardeild áætlar að um 2.500 hótelherbergi verði byggð í Reykjavík fram til ársins 2020.

  • Aukinn ferðamannafjöldi eykur álag á hagræna innviði landsins eins og flugvelli, hafnir og vegakerfi. Einnig getur ferðamannastraumurinn reynt á félagslegu innviðina eins og heilbrigðiskerfið og löggæsluna.

  • Að mati deildarinnar er brýnt að fjárfesta í samgöngum og þá sérstaklega vegakerfinu en einnig mætti efla innanlandsflug til að dreifa ferðamönnum betur um landið.

  • Til að fjármagna fjárfestingu hins opinbera í innviðum er brýnt að ná samstöðu um sanngjarna gjaldtöku. Sem dæmi mætti hækka gistináttaskatt og að auka beina gjaldtöku á einstaka ferðamannastöðum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira