29.09.2015

Ferða­þjónustu­út­tekt: Við er­um öll í ferða­þjónustu

Greiningardeild stóð fyrir morgunfundi í morgun um stöðu og horfur í ferðaþjónustu um þessar mundir og birtir nú ferðaþjónustuúttekt sína. Við spáum áframhaldandi fjölgun ferðamanna og að árið 2018 gætu komið hingað tæplega tvær milljónir erlendra ferðamanna, en spáin er þó háð mikilli óvissu. Fjölgunin getur áfram orðið mikil og byggist úttekt okkar að miklu leyti á vangaveltum um hvort og hvernig ýmsir innviðir, vinnumarkaður o.fl. geta tekist á við slíka fjölgun.

Í úttektinni skoðum við einnig vaxandi mikilvægi ferðaþjónustu í hagkerfinu, greinum neyslu ferðamanna og sýnum fram á að raungengi (samspil verðlags og nafngengis) krónunnar hefur umtalsverð áhrif á neyslu ferðamanna hér á landi. Þá er hótelmarkaðurinn greindur eftir landshlutum og ferðaþjónustan á Íslandi sett í alþjóðlegt samhengi svo eitthvað sé nefnt.

Ferðaþjónustuúttekt Greiningardeildar: Við erum öll í ferðaþjónustu
Glærur frá morgunfundi 29. september

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira