27.08.2015

Fjárfesta­dag­ur Startup Reykja­vík hald­inn í fjórða sinn í Arion banka

Startup Reykjavík, viðskiptahraðall Arion banka í samstarfi við Klak Innovit, mun á morgun, 28. ágúst, halda sinn árlega fjárfestadag. Viðburðurinn fer fram í höfuðstöðvum Arion banka og hefst kl. 9:00. Á fjárfestadeginum verður fjárfestum og öðrum gestum boðið að kynnast verkefnum fyrirtækjanna sem tóku þátt í ár. Markmið Startup Reykjavík er að skapa umgjörð þar sem athafnafólk nýtur ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum viðskiptatækifærum. Er þetta í fjórða sinn sem slíkur dagur er haldinn.

Startup Reykjavík verkefnið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi en verkefni sem þessi hafa notið mikilla vinsælda og virðingar víða um heim hjá fjárfestum og fyrirtækjum sem eru að stíga sín fyrstu skref. Startup Reykjavík hlaut viðurkenningu sem besti viðskiptahraðall Norðurlanda á Nordic Startup Awards fyrr á þessu ári. Tíu fyrirtæki taka þátt í Startup Reykjavík hverju sinni og stendur verkefnið yfir í tíu vikur. Fyrirtækin fá sameiginlega skrifstofuaðstöðu, aðstoð og leiðbeiningar frá tugum mentora auk þess sem Arion banki leggur hverju og einu fyrirtæki til 2 milljónir í hlutafé gegn 6% eignarhlut.

Fyrirtækin sem kynna á fjárfestadaginn eru:

Datadrive

Hugbúnaður sem safnar upplýsingum frá bílum og sendir í snjallsíma eigandans.

Delphi

Nýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni.

Elsendia

Samtvinnar rafræn skilríki og rafræna lyfseðla. Lyf keypt á netinu og send til viðtakanda með öruggum hætti.

Genki instruments

Þróa raftónlistarhljóðfæri sem tengjast með áður óséðum hætti.

Hún / Hann brugghús

Örbrugghús með frumlega gæðabjóra í takmörkuðu upplagi.

Ludis

Þróa leikjavettvang sem byggir á samskiptum á milli sjónvarps og síma.

Spor í sandinn

Sjálfbær gróðurhús tengd sundlaugum borgarinnar. Sala staðbundinna matvæla, nýjung í ferðaþjónustu, fræðslu og afþreyingu.

Study Cake

Vettvangur fyrir nemendur og kennara þar sem heimavinnan er gerð skemmtilegri og árangur mælanlegri.

Viking Cars

Markaðstorg þar sem hægt er að deila bílum með öruggri yfirstjórn. Airbnb fyrir bíla.

Wasabi Iceland

Hágæða wasabiræktun á Íslandi með hreinu vatni og endurnýjanlegri orku.

Auk þeirra munu fyrrum þátttakendur kynna fyrirtækin sín eins og þau standa í dag.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira