16.03.2016

Fjármála­vit í skól­um um land allt

Samtök fjármálafyrirtækja standa fyrir skemmtilegu verkefni um land allt sem nefnist Fjármálavit og lítur að því að auka fjármálalæsi unglinga á efsta stigi grunnskóla. Um er að ræða samvinnuverkefni fjármálafyrirtækja og tekur Arion banki að sjálfsögðu þátt.

Á þriðja tug starfsmanna bankans hefur undanfarið mætt í kennslustundir í grunnskólum og farið yfir efni Fjármálavits, en SFF þróaði og vann námsefnið í samvinnu við kennara og kennaranema. Tilgangurinn er að veita innblástur í kennslu um fjármál. Námsefnið er byggt upp sem sjálfstæðar kennslustundir með umræðum og verkefnum, en til stuðnings eru einnig stutt myndbönd sem nemendur geta horft á til að tengja við viðfangsefnið.

Fjármálavit hóf göngu sína í Evrópskri peningaviku í mars 2015. Allir 10. bekkir í grunnskólum landsins hafa fengið boð um heimsókn Fjármálavits í vetur þar sem nemendur leysa verkefni og spjalla um fjármál. Skólar hafa tekið boðinu vel og hefur Fjármálavit farið mjög víða um allt land en frá því að verkefnið fór af stað fyrir ári hefur Fjármálavit farið í 106 skólaheimsóknir og hitt ríflega 4100 nemendur í 10. bekk og unnið verkefni með hverjum bekk fyrir sig. Heimsóknir eru skólum að kostnaðarlausu og í boði á meðan skólaárið stendur yfir.

Hér má sjá umfjöllun um Fjármálavit í sjónvarpsþættinum Ísland í dag.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Helga Bjarnason framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs og Sævar Bjarnason forstöðumann bíla- og tækjafjármögnunar Arion banka í kennslustundum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira