18.11.2016

Fjöldi gesta sótti loka­dag Startup Energy Reykja­vík

Lokadagur viðskiptahraðalsins Startup Energy Reykjavík fór fram föstudaginn 18. nóvember í höfuðstöðvum Arion banka. Startup Energy Reykjavík er viðskiptahraðall Arion banka fyrir orkutengd sprotafyrirtæki.

Lokadagurinn markar kaflaskil fyrir þau fyrirtæki sem tóku þátt í Startup Energy Reykjavík. Á lokadeginum var fjárfestum og öðrum gestum boðið að kynnast verkefnum fyrirtækjanna sem tóku þátt í ár. Markmið Startup Energy Reykjavík er að skapa umgjörð þar sem athafnafólk nýtur ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum orkutengdum viðskiptatækifærum. Er þetta í þriðja sinn sem slíkur dagur er haldinn. Sjö fyrirtæki taka þátt í Startup Energy Reykjavík hverju sinni og stendur verkefnið yfir í tíu vikur. Fyrirtækin fá sameiginlega skrifstofuaðstöðu, aðstoð og leiðbeiningar frá tugum mentora auk þess sem bakhjarlar verkefnisins leggja hverju og einu fyrirtæki til 5 milljónir í hlutafé gegn 10% eignarhlut.

Áður en teymin sjö, sem unnið hafa að sínum viðskiptahugmyndum í allt haust, kynntu sig, tóku til máls Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka; Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra nýsköpunar; Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, fjármálastjóri Carbon Recycling International.

Bakhjarlar verkefnisins eru Arion banki, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð og GEORG – Rannsóknarklasi í jarðvarma. Icelandic Startups og Iceland Geothermal sjá um framkvæmd verkefnisins.

Fyrirtækin sem í ár voru valin til þátttöku í Startup Energy Reykjavík eru:

Arctic Sea Minerals

Saltframleiðsla sem skilar afurð sem er betri fyrir heilsuna og inniheldur minna sódíum.

ELF Tech

Þróar áfram tækni sem gerir mögulegt að skyggnast undir yfirborð jarðar og hlusta á norðurljósin.

Health Snacks

Framleiðir nýstárlegt snarl úr fiskroði.

Ískristallar

Vinna að því að koma á markað próteinum sem hafa þann eiginleika að draga úr ískristalla myndun í matvælum, sem leiðir til mun lengra geymsluþols matvæla í frystingu.

Atmonia

Framleiðir ammoníak til áburðarframleiðslu með sjálfbærum hætti.

Mýsköpun

Fjölnýting jarðvarma við ræktun og hagnýtingu þörunga úr Mývatni.

Zeto

Hefur þróað og prófað lífræna sápu- og húðvörulínu þar sem þaraþykkni er notað í stað vatns, án fylliefna og kemískra aukaefna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira