22.11.2016

Fleiri skref stig­in í átt að papp­írs­lausri starf­semi – út­prent­un á daga­töl­um hætt

Um áramótin mun Arion banki ekki útbúa og senda borðdagatöl til viðskiptavina líkt og venjan hefur verið. Segja má að ákvörðunin sé tímanna tákn þar sem aukin tölvu- og snjallsímanotkun hefur það í för með sér að fólk nýtir tæknina sífellt meira til að skipuleggja tímann sinn. Ákvörðunin er einnig í takt við stefnu bankans um að sýna umhverfinu umhyggju og virðingu, meðal annars með því að auka hlutdeild pappírslausra viðskipta. Á síðasta ári prentaði bankinn út 69 þúsund dagatöl og er því um verulegan pappírssparnað að ræða.

Arion banki undirritaði loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar í nóvember á síðasta ári og síðan þá hefur verið unnið að því með markvissum hætti að kortleggja kolefnisspor bankans og draga úr mengun í starfseminni. Bankinn hefur nú þegar rafvætt um helming bílaflotans í starfsemi sinni og vinnur að því að auka endurvinnslu og minnka sorp. Undanfarin ár hefur náðst góður árangur í að draga úr pappírsnotkun í starfseminni nú síðast með því að gefa viðskiptavinum tækifæri á að stofna til viðskipta með rafrænum skilríkjum.

Bankinn hefur sett sér eftirfarandi markmið í umhverfismálum

  • Að flokka úrgang frá bankanum eins og hægt er hverju sinni.

  • Að fara sparlega með orku í starfsemi sinni.

  • Að nýta sér umhverfisvænar lausnir við prentun pappírs með nýrri tækni.

  • Að hvetja og styðja starfsmenn til að hafa umhverfismál að leiðarljósi í starfi og heima fyrir.

  • Að velja umhverfisvæna vöru og/eða þjónustu við innkaup þar sem því verður við komið.

  • Að stefna að aukinni hlutdeild pappírslausra viðskipta.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira