29.10.2015

Gagn­kvæm ánægja með út­gáfu skulda­bréfs

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, handsöluðu nýverið samning um útgáfu skuldabréfs Landsvirkjunar í samstarfi við Arion banka. Skuldabréfið er til 7 ára og fjárhæðin er 50 milljónir Bandaríkjadala eða sem samsvarar 6,3 milljörðum íslenskra króna. Bréfið ber 4,27% fasta vexti sem greiðast tvisvar á ári en höfuðstóllinn greiðist í einu lagi á lokagjalddaga. Landsvirkjun hefur heimild til uppgreiðslu að hluta eða að fullu á lánstímanum.

Skuldabréfaútgáfan er gerð undir EMTN (Euro Medium Term Note) ramma félagsins án ríkisábyrgðar og hefur verið skráð í kauphöllinni í Luxemborg.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Við höfum átt skilvirkt og gott samstarf við Arion banka um útgáfu þessa skuldabréfs. Andvirðið munum við nýta til almennrar fjármögnunar Landsvirkjunar. Fyrirtækið stendur vel og hjá okkur eru margvísleg spennandi verkefni framundan. Til að mæta aukinni eftirspurn erum við að skoða fjölbreytta virkjunarkosti sem gætu aukið orkuvinnslugetu og þar með verðmætasköpun Landsvirkjunar.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það er stefna okkar að vinna með öflugum og framsæknum fyrirtækjum að áhugaverðum verkefnum og skuldabréfaútgáfa Landsvirkjunar fellur vel að þeirri stefnu. Við höfum að undanförnu unnið að bættu aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum fyrir bankann og viðskiptavini okkar. Það framtak nýtist íslensku efnahagslífi almennt, enda skiptir aðgengi að erlendu lánsfé á hagstæðum kjörum miklu fyrir áframhaldandi uppbyggingu.“

Á meðfylgjandi mynd eru Rafnar Lárusson, fjármálastjóri Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, og Freyr Þórðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira