23.09.2016

Gleð­in skein úr augum ólymp­íufaranna í mót­töku þeim til heiðurs

Íslensku keppendurnir á Ólympíuleikum fatlaðra í Ríó voru heiðraðir í móttöku sem haldin var þeim til heiðurs í höfuðstöðvum Arion banka síðastliðinn fimmtudag. Það má með sanni segja að þau hafi unnið hug og hjörtu íslendinga með frammistöðu sinni og framkomu á leikunum.

Þau sem kepptu fyrir hönd Íslands voru: Thelma Björg Björnsdóttir, Sonja Sigurðardóttir og Jón Margeir Sverrisson sem kepptu í sundi, Helgi Sveinsson sem keppti í frjálsum íþróttum og Þorsteinn Halldórsson keppti í bogfimi, fyrstur Íslendinga.

Við hjá Arion banka erum stolt af því að styðja við Íþróttasamband fatlaðra.

Mynd: F.h. Thelma Björg Björnsdóttir, Sonja Sigurðardóttir, Jón Margeir Sverrisson, Þorsteinn Halldórsson, Helgi Sveinsson og Þórður Árni Hjaltested, varaformaður Íþróttasambands fatlaðra.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira