15.12.2016

Greiðslu­mat á að­eins ör­fá­um mín­út­um

Arion banki kynnir í dag nýja, einfalda leið fyrir einstaklinga til að fá greiðslumat á aðeins nokkrum mínútum. Á vef bankans, arionbanki.is, geta nú allir þeir sem eiga rafræn skilríki fengið sjálfvirkt greiðslumat á örskotsstundu. Þeir sem standast greiðslumatið þurfa því ekki að gera fyrirvara um greiðslumat þegar kauptilboð er lagt fram.

Með nýju greiðslumati Arion banka þurfa umsækjendur ekki að safna saman launaseðlum, skattframtali og öðrum fylgiskjölum. Bankinn sér einfaldlega um að afla þessara upplýsinga rafrænt frá Creditinfo og RSK. Gagnaöflun og uppflettingar bankans byggjast á rafrænu samþykki umsækjenda.

Samhliða þessari breytingu mun kostnaður vegna greiðslumats lækka umtalsvert. Arion banki mun ekki innheimta sérstakt greiðslumatsgjald en umsækjendur þurfa að greiða þann kostnað sem til fellur vegna uppflettinga hjá þriðja aðila, m.a. í skuldastöðukerfi og ökutækjaskrá. Sá kostnaður er 3.200 kr. fyrir einstakling og 5.500 kr. fyrir hjón eða fólk í sambúð.

Þessi nýja lausn er afrakstur þróunarvinnu sem miðar að því að auka þægindi viðskiptavina og spara þeim dýrmætan tíma. Þegar hefur Arion banki kynnt stafrænar leiðir til að koma í viðskipti við bankann, greiðsludreifingu kreditkortareikninga á netinu og val á nýjum greiðslukortum sem og innlánareikningum. Arion banki mun áfram vinna að innleiðingu stafrænnar þjónustu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira