22.01.2025
Handbolti á fyrst og fremst að vera skemmtilegur
Viðtal við Viggó Kristjánsson, landsliðsmann í handbolta
Heimsmeistaramót karla í handknattleik fer nú fram í Króatíu, Danmörku og Noregi og hefur íslenska landsliðið átt frábæra byrjun, unnið alla leikina í riðlinum og strákarnir okkar því komnir í milliriðil með fullt hús stiga. Arion banki er sem fyrr samstarfsaðili og bakhjarl landsliðsins og við heyrðum stuttlega í Viggó Kristjánssyni sem er einn reynslumesti leikmaður Íslands á mótinu.
Hæ, Viggó. Segðu okkur, hvernig undirbýrðu þig fyrir landsleikina?
„Jú, það gerist í nokkrum skrefum. Maður leikgreinir auðvitað andstæðinginn, fer í gegnum myndbönd af honum og þess háttar svo að maður renni ekki blint í sjóinn og viti hvað mótherjinn getur. Svo reyni ég að halda fastri rútínu. Við höfum verið að spila seint á kvöldin á mótinu og það getur reynt á taugarnar. Við vöknum í morgunmat og svo er tekin létt æfing, síðan er hádegismatur, næst stuttur fundur og því næst reynir maður kannski að leggja sig í klukkutíma. Áður en við höldum í höllina er það sturta, smá stemningstónlist í rútunni – og svo um leið og komið er inn í klefann hefst bara venjulegur undirbúningur.“
Engin reykelsi eða hugleiðsla?
Viggó hlær. „Nei, ekkert svoleiðis. Og þó – það er auðvitað viss hugleiðsla fólgin í því að sjá fyrir sér hvernig leikurinn getur þróast. Ég geri það fyrir hvern leik. Andlegur undirbúningur.“
Á mótinu í ár hefur sérstaka athygli hversu mikil snerpa einkennir íslenska landsliðið. Leikmenn slá aldrei slöku við og eru jafnan leifturfljótir að keyra upp völlinn í næstu sókn. Viggó tekur undir það en bendir jafnframt á að hraði handboltaleikja hafi einfaldlega aukist á síðustu árum. Það hljótist meðal annars af reglubreytingu sem gerð var fyrir nokkrum árum þegar miðjulína vallarins var tekin út og í staðinn settur hringur, en þær breytingar hafi í raun aukið hraða leiksins um 10-15%, að hans mati.
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki? Er eitthvað sérstakt sem þú verður alltaf að gera?
Viggó hugsar sig vel um. „Já, veistu, ég er svolítið hjátrúarfullur – en er samt ekki með eitthvert eitt sem ég verð að gera. Þú veist, fara í hægri skóinn fyrst – ekkert þannig. En ég vil hafa hlutina í föstum skorðum. Ef ég reima til dæmis skóinn vitlaust, er með skrítna tilfinningu fyrir því, þá reima ég aftur.“
Ertu með einhver góð ráð fyrir upprennandi íþróttamenn?
„Handbolti er auðvitað bara leikur og aðalatriðið að hafa gaman. Og trúa á sjálfan sig og þora að prófa sig áfram. En mikilvægast er að muna að þetta þetta bara leikur – og til þess gerður að hafa gaman af því að spila.“