07.12.2016

Hild­ur og Einar Örn ný­ir úti­bús­stjór­ar hjá Arion banka

Einar Örn Ævarsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Arion banka í Garðabæ. Hann tekur við starfinu af Kristbjörgu Héðinsdóttur sem færir sig um set innan bankans og tekur við starfi forstöðumanns þjónustustýringar. Hildur Markúsdóttir tekur við starfi Einars Arnar sem útibússtjóri Arion banka í Hafnarfirði. Hún hefur gegnt starfi þjónustustjóra Arion banka í Hafnarfirði frá árinu 2014.

Einar Örn er viðskiptafræðingur að mennt. Hann hefur lengst af starfað í fjármálageiranum og frá árinu 2013 verið útibússtjóri Arion banka í Hafnarfirði. Einar Örn er Garðbæingur, giftur Andreu Olsen lögfræðingi og eiga þau þrjá drengi.

Hildur er viðskiptafræðingur að mennt. Hún hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 með nokkrum hléum og gengt margvíslegum störfum innan bankans. Hildur er Hafnfirðingur, gift Sigfúsi Helga Helgasyni viðskiptastjóra hjá Eimskipum og eiga þau þrjá syni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira