23.06.2025

Hluta­fé í Arnar­landi ehf. boð­ið til sölu

Eigendur Arnarlands ehf., Landey ehf. og Fasteignafélagið Akurey ehf., hafa ákveðið að setja allt hlutafé félagsins í söluferli. Félagið er eigandi að landspildu á Arnarneshálsi í Garðabæ sem gengur undir heitinu Arnarland.

Gert er ráð fyrir glæsilegri íbúðabyggð í Arnarlandi þar sem heimilt er að reisa allt að 451 íbúðareiningu, samtals um 50.000 fermetra af íbúðarhúsnæði. Einnig er heimild fyrir allt að 5.400 fermetrum af atvinnuhúsnæði á svæðinu, en hluti byggingarréttar til atvinnuhúsnæðis hefur þegar verið seldur frá félaginu.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. annast söluferlið sem byggir á útboðsfyrirkomulagi. Þeir fjárfestar sem teljast hæfir samkvæmt lögum nr. 14/2020 um lýsingu verðbréfa, eða hafa fengið sérstakt boð frá umsjónaraðila, geta tekið þátt í ferlinu.

Áhugasamir fjárfestar eru hvattir til að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka á netfangið arnarland2025@arionbanki.is. Nánari upplýsingar um svæðið og uppbyggingaráform má finna á heimasíðu félagsins: www.arnarland.is.

Nánar um söluferlið

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira