26.01.2025
Hraðaspurningar: Janus
Janus Daði Smárason fæddist árið 1995 og hóf handboltaferil sinn í heimabænum Selfossi. Eftir að hafa einnig stimplað sig rækilega inn hjá Haukum hélt hann svo út fyrir landsteinana og lék með Århus Håndbold í Danmörku. Næst lá leiðin til Füchse Berlin í Þýskalandi sem var eitt besta félagslið Evrópu. Janus hefur einnig verið mikilvægur hluti af íslenska landsliðinu og átt gjöfult samstarf með leikmönnum á borð við Viggó Kristjánsson og Aron Pálmarsson en þeir félagar hafa margsinnis vakið athygli fyrir afar samhæfðan leik og sköpunargleði á vellinum.
Hæ, Janus! Ertu ekki til í nokkrar hraðaspurningar?
Hæ! Jú, ég er til.
Stærsta fyrirmyndin?
Fjölskyldan.
Besta morgunrútínan?
Vakna snemma, góður kaffibolli.
Hvaða tungumál talarðu?
Íslensku, þýsku, ensku, dönsku, norsku.
Til hvers hlakkarðu mest í augnablikinu?
Leiksins við Egyptaland!
Hvað fyllir þig hræðslu?
Nýlega orðinn pabbi, nýjar áskoranir!
Hvað gleður þig?
Vinir og fjölskylda.
Bestu stoðsendingarnar í íslenska liðinu?
Bjöggi.
Hver er fyndnastur í liðinu?
Bjarki.
Hver er vandræðalegastur í liðinu?
Gísli.
Hver er alltaf seinn á æfingar í liðinu?
Viggó.
Hvernig hleðurðu batteríin?
Með því að spila golf og tölvuleiki.
Mest mótandi lífsreynslan?
Að búa mikið erlendis fjarri fjölskyldu og heimahögum.
Ertu hámhorfari?
Já, ég get alveg dottið í glápið.
En ertu tónlistaralæta?
Já, líklega get ég líka sagt það.
Uppáhaldsstaðurinn?
Selfoss.
Besta heilræðið?
Þú getur ekki breytt því sem er búið og gert.
Hvernig viltu hafa kaffið þitt?
Espressó, svart.
Vandræðalegasta mómentið?
Ekkert sem situr í manni – nema kannski þegar maður klúðrar á vellinum og kastar boltanum eitthvað út í bláinn eins og auli!
Besta nammið?
Hlaup.
Síðasta hrós sem þú gafst?
Í morgun hrósaði ég skeggrót Teits.
Ef þú værir ekki handboltamaður hvað værir þú þá að gera?
Bílasali á Selfossi.