01.12.2025

Hraða­spurningar: Sandra Erl­ings

Við fengum Söndu Erlingsdóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins í handbolta, til að taka laufléttar hraðaspurningar. Sandra leiðir stelpurnar okkar á HM 2025 í Þýskalandi og Hollandi um þessar mundir.

Hér má líka lesa stutt viðtal við Söndru.

Ertu A eða b manneskja?
A.

Fyrirmyndin?
Stine Oftedal.

Tónlistin í heyrnartólunum?
Eitthvað rólegt og rómantískt.

Besta handaboltakonan?
Stine Oftedal.

Sjónvarpsþátturinn?
One Tree Hill.

Hæsta fjall sem þú hefur klifið?
Esjan bara held ég!

Skemmtilegasta íþróttin fyrir utan handbolta?
Fótbolti.

Uppáhaldsstaður á Íslandi?
Vestmannaeyjar.

Uppáhaldsstaður í heiminum?
Vestmannaeyjar.

Lið í enska?
Arsenal.

Föstudags- eða laugardagskvöld?
Laugardagskvöld.

Vandræðalegasta mómentið?
Góð spurning! Ég er alltaf að gera eitthvað vandræðalegt. Nýlega ætlaði ég að vippa yfir markmanninn og hún bara greip boltann. Það var mjög vandræðalegt, sérstaklega þegar ég sá upptökuna af þessu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira