24.01.2025
Hraðaspurningar: Viggó
Viggó Kristjánsson hefur notið mikillar velgengni í handboltanum bæði hér heima og úti í Þýskalandi. Hann hóf ferilinn með Gróttu en tók ungur skrefið út í atvinnumennsku og hefur leikið í Þýskalandi við frábæran orðstír. Í þýsku deildinni, sem er ein sú sterkasta í heimi, hefur hann verið lykilleikmaður hjá bæði Leipzig og Stuttgart og fest sig í sessi sem mikill markahrókur. Viggó hefur sömuleiðis verið mikilvægur hlekkur í íslenska landsliðinu og tekið þátt í stórmótum þar sem hann hefur heillað áhorfendur með hárnákvæmum skotum sínum og miklum leikskilningi.
Við heyrðum hljóðið í Viggó á hvíldardegi og lögðum fyrir hann nokkrar laufléttar hraðaspurningar. Ekki stóð á svörum örvhentu skyttunnar:
Hæ, Viggó!
Hæ!
Ertu a eða b manneskja?
B.
Mesta fyrirmyndin?
Mamma.
Mesti tuddinn í íslenska liðinu?
Ýmir.
Besta tónlistin?
Eitís.
Besta kvikmyndin?
Rocky.
Uppáhaldsstaður á Íslandi?
Seltjarnarnes.
Uppáhaldsstaður í heiminum?
Heima er best.
Lífsmottóið?
Að vera góður pabbi.
Stærsta persónulega afrekið?
Að vera tveggja barna faðir.
Föstudags- eða laugardagskvöld?
Föstudags.
Hundar eða kettir?
Hundar.
Skegg eða ekki skegg?
Ekki skegg.
Besta útivistin?
Sjósund.
Mesta lífsreynslan?
Pabbinn.
Besti veitingastaðurinn?
Kol.
Besti skyndibitinn?
Domino‘s.
Besti drykkurinn?
Kaffi.
Býrðu yfir leyndum hæfileikum?
Nei.
Draumagæludýrið?
Sáttur við hundinn sem ég á.
Ef þú værir ekki handboltamaður hvað værir þú þá að gera?
Fótboltamaður.