09.12.2015

Hús­næð­is­markaðurinn – í leit að nýju jafn­vægi

Greiningardeild stóð í morgun fyrir fundi um horfur á húsnæðismarkaði til ársins 2018 og gefur nú út úttekt á markaði íbúðarhúsnæðis. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi hækkun verðs á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og að nafnverð húsnæðis hækki um 30% fram til ársloka 2018 en að raunverð hækki um 15% á sama tíma. Mestu hækkanirnar verða í ár og fram á árið 2017 þegar hægir á verðhækkunum. Ástæðan fyrir minni hækkunum þegar líður á spátímann er sú að við reiknum með að þá komi talsvert magn af nýjum íbúðum inn á markaðinn sem mun mæta uppsafnaðri eftirspurn síðustu ára.

Hér má sjá úttekt Greiningardeildar í heild sinni: Húsnæðismarkaðurinn – í leit að nýju jafnvægi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira