18.12.2015

Jök­ull ráð­inn for­stöðu­maður mannauðs hjá Arion banka

Jökull H. Úlfsson hefur verið ráðinn forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka. Um er að ræða nýja deild innan bankans, sem heyrir beint undir bankastjóra, þar sem saman koma starfsmannaþjónusta og straumlínustjórnunarteymi bankans. Hlutverk mannauðsdeildar verður að viðhalda þeim góða árangri sem þegar hefur náðst, jafnframt því að styðja við jákvæðar breytingar í fyrirtækjamenningu bankans með áherslu á stöðugar umbætur í starfseminni.

Jökull hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum. Hann hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 2002, nú síðast frá árinu 2012 sem forstöðumaður straumlínustjórnunar á þróunar- og markaðssviði, þar sem hann veitti forystu teymi sérfræðinga við innleiðingu straumlínustjórnunar.

Áður var Jökull forstöðumaður í eignastýringu bankans. Hann er viðskiptafræðingur að mennt en hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Eiginkona Jökuls er Guðrún Valborg Björgvinsdóttir og saman eiga þau þrjú börn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira