13.10.2015

Kaup á fasteigna­fé­lögum í rekstri Stefnis

Reitir fasteignafélag hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við eigendur fasteignasjóðanna SRE I slhf. og SRE II slhf. sem eru í rekstri Stefnis hf., um kaup Reita á tilteknum fasteignafélögum.

Heildarvirði kaupanna er samtals 17.980 m.kr. og verður að fullu fjármagnað með lánsfé og yfirtöku áhvílandi skulda. Um er að ræða tæplega 37.500 fermetra af vönduðu húsnæði ásamt byggingarrétti. Þessar fasteignir eru Hótel Borg, Borgartún 37, Guðrúnartún 10, Þingvallarstræti 23 á Akureyri, Laugavegur 77, Fiskislóð 11, Skúlagata 17, Síðumúli 16-18 og Faxafen 5. Allt að 6 þúsund fermetra byggingaréttur fylgir Borgartúni 37.

Eignirnar eru í útleigu til um 20 aðila með um 99% útleiguhlutfall en helstu leigutakar eru KEA hótel, Advania , Nýherji, Icelandair hótel, Geymslur og Fastus. Leigutekjur á ársgrunni nema um 1.360 m.kr. og er meðaltími leigusamninga um 12 ár. Leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 1.125 m.kr. á ársgrundvelli.

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum vegna viðskiptanna hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um samþykki hluthafafunda seljenda, niðurstöður áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins og endanlega fjármögnun Reita fyrir kaupunum. Fyrir liggur tilboð um fjármögnun frá Arion banka háð fyrirvara.

Ráðgjafi Reita vegna viðskiptanna er fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira