13.09.2016

Kringlu­úti­bú­ið er framúrsk­ar­andi ann­að ár­ið í röð

Útibú Kringlunnar fékk nýlega viðurkenningu frá Rekstrarfélagi Kringlunnar fyrir að vera „Fyrirmyndarfyrirtæki Kringlunnar 2016“ með einkunnina ,,framúrskarandi“. Um er að ræða þjónustukönnun sem gerð er á vegum rekstrarfélagsins en útibúið fékk sömu viðurkenningu árið 2015.

Margrét Stefánsdóttir, þjónustustjóri í Kringluútibúi, er að vonum ánægð með góðan árangur:
„Það er mjög ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu annað árið í röð. Við settum okkur það að markmiði í fyrra að ná svokallaðri þrennu, en sérstök viðurkenning er veitt til þeirra fyrirtæka sem fá 100% skor þrjú ár í röð. Við stefnum á að ná sama skori að ári og fá þrennuna í hús.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira