18.10.2016

Lán­töku­gjöld íbúða­lána Arion banka verða föst upp­hæð – um­tals­verð lækkun fyrir flesta

Arion banki hefur breytt lántökugjöldum íbúðalána bankans þannig að þau eru nú föst tala, 49.900 krónur, óháð upphæð lána. Hingað til hafa lántökugjöld að jafnaði verið 1% af lánsfjárupphæðinni og því er um umtalsverða lækkun að ræða fyrir flesta lántakendur.

Breytingin nær til allra gerða íbúðalána en Arion banki býður verðtryggð lán, óverðtryggð lán og blönduð lán í þeim hlutföllum sem henta hverjum og einum. Bankinn lánar allt að 80% af markasvirði eignar og í þeim tilvikum þar sem tekin eru 80% lán, er lánið tvískipt. Annað lánið getur numið að hámarki 70% af fasteignamati eignarinnar en hitt lánið brúar bilið upp í allt að 80% af markaðsvirði. Í slíkum tilvikum er aðeins greitt eitt lántökugjald þó að um tví- eða þrískipt íbúðalán sé að ræða.

Áfram verður veittur 100% afsláttur af lántökugjöldum við fyrstu íbúðakaup og lánar bankinn allt að 85% af markaðsvirði fasteignarinnar við fyrstu kaup, að hámarki 30 milljónir eða 85% af markaðsvirði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira