01.04.2016

Mik­il aukning um­sókna í Startup Reykja­vík

Alls bárust 247 umsóknir um þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Reykjavík sem fram mun fara í sumar. Verður þetta fimmta sumarið sem viðskiptahraðallinn fer fram á vegum Arion banka og Icelandic Startups. Um er að ræða 76% aukningu í umsóknum frá síðasta ári, en umsóknarfrestur rann út í gær, 31. mars. Startup Reykjavík var valinn besti viðskiptahraðall Norðurlanda árið 2015.

Startup Reykjavík fór fyrst fram árið 2012 og árlega hafa 10 félög tekið þátt og þróað sínar viðskiptahugmyndir. Með þátttöku í Startup Reykjavík fá félögin aðstöðu í 10 vikur sem þau deila með hinum teymunum sem þátt taka. Einnig njóta þau leiðsagnar fjölda reyndra mentora sem deila sinni þekkingu og reynslu. Að auki þá fjárfestir Arion banki í félögunum sem taka þátt í Startup Reykjavík fyrir 2,4 milljónir króna gegn 6% eignarhlut. Alls hafa 40 félög farið í gegnum Startup Reykjavík viðskiptahraðalinn.

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka:

„Ég held að aukninguna í ár megi skýra með ýmsu móti. Í fyrsta lagi voru óvenju fáar umsóknir í fyrra miðað við árin á undan. Hins vegar liggur skýringin í því að nýsköpunarumhverfið á Íslandi hefur eflst til mikilla muna á undanförnum árum og ekki síst á árinu 2015. Það eru fleiri viðburðir sem tengjast nýsköpun og fleiri vettvangar fyrir frumkvöðla til að koma saman og sinna sínum verkefnum í skapandi umhverfi. Einnig hafa fjölmiðlar sinnt þessum málaflokki óvenju vel og síðast en ekki síst þá eru í dag fjórir öflugir fjárfestingasjóðir sem leggja áherslu á nýsköpun. Það skilar sér meðal annars í því að sprotafyrirtæki, sem mörg hver hafa tekið þátt í Startup Reykjavík, hafa sótt sér fjármögnun á undanförnum mánuðum. Allt skiptir þetta máli við að skapa hér á landi frjóan jarðveg fyrir frumkvöðla og ung fyrirtæki sem horfa ekki síður á tækifæri á alþjóðavísu en á Íslandi.“

Startup Reykjavík er í eigu Arion banka en umsjón viðskiptahraðalsins er í höndum Icelandic Startups.

Meðfylgjandi eru myndir af tveimur af þeim 40 teymum sem farið hafa í gegnum Startup Reykjavík á undanförnum árum, Eskitech og Mure.

Eskitech

Mure

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira