22.11.2016

Nol­an Williams kennir á nám­skeiði um mút­ur í al­þjóð­legum viðskipt­um og skyld­ur endur­skoðenda

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið í samstarfi við Félag löggiltra endurskoðenda stendur fyrir námskeiði um mútur og spillingu í alþjóðlegum viðskiptum og skyldur endurskoðenda í að upplýsa um brot af því tagi. Á námskeiðinu verður fjallað um samning OECD um baráttu gegn mútugreiðslum til opinberra starfsmanna þvert á landamæri. Sérstaklega verður fjallað um hlutverk og ábyrgð endurskoðenda og fyrirtækja út frá góðum stjórnarháttum. Nánari upplýsingar má finna hér.

Nolan Williams, sérfræðingur í rekstraráhættu hjá Arion banka verður einn af aðal leiðbeinendum á námskeiðinu, ásamt Helgu Hlín Hákonardóttur, lögmanni og ráðgjafa hjá Strategíu og Sveini Helgasyni, sérfræðingi hjá innanríkisráðuneytinu.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og verður haldið í húsnæði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, Reykjavík 24. nóvember, kl. 8.30-12.00. Skráning er til kl. 15.00, 23. nóvember.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira