30.09.2026

Ný efna­hags­spá Ari­on: Langur vet­ur, hæg­ar leys­ingar

Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir hörðum og krefjandi vetri í íslensku hagkerfi . Ekki sér fyrir endann á stríðsrekstri í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi áhrifum á orkumarkaði og verðbólgu- og hagvaxtarhorfur, bæði hér heima og erlendis. Vonir um skjótar vaxtalækkanir hafa því orðið að engu og svartsýni aukist innan heimila og fyrirtækja. Þrautaganga þessi endurspeglast í lægri hagvaxtarspá en áður, hærri vöxtum og meiri verðbólgu.  

Verðbólgan hefur reynst tregari í taumi en áður var talið. Þó ekki megi líta fram hjá þrálátum innlendum verðbólguþrýstingi eru það fyrst og fremst áhrifin af stríðsátökunum í Mið-Austurlöndum og hækkanir opinberra gjalda sem hafa þrýst verðbólgunni upp. Við eigum von á skaplegri verðbólguþróun á næsta ári, ekki síst vegna grunnáhrifa, og að verðbólga verði 4,2% á næsta ári. Leiðin að verðbólgumarkmiði er hins vegar torsótt, sem seinkar vaxtalækkunum fram á mitt næsta ár. Samkvæmt spánni lækka vextir um 1 prósentu á næsta ári og enda árið í 7%.  

Þó heimilin séu skuldlétt og fjárhagsstaða þeirra almennt sterk hafa háir vextir, dýrtíð og stígandi atvinnuleysi dregið úr væntingum þeirra. Útlit er fyrir að samspil þessara þátta dragi úr neysluvilja og þar með vexti einkaneyslunnar í vetur og vel fram á næsta ár. Hátt vaxtastig og hert aðgengi að lánsfé setja einnig svip sinn á fjárfestingarumhverfið, ekki síst íbúðafjárfestingu sem reiknað er með að dragist saman í ár og enn meira á næsta ári. Við spáum áframhaldandi hægagangi á húsnæðismarkaði og lækkun raunverðs fram á mitt ár 2028.  

Þjóðhagsreikningar hafa sveiflast í takt við gagnaverin. Innflutningur á tölvubúnaði hefur verið gríðarlegur í ár en á sama tíma hefur útflutningur dregist lítillega saman. Á næsta ári er útlit fyrir að allir undirliðir útflutnings leggist á eitt – ferðaþjónustan, sjávarútvegur, álframleiðsla, fiskeldi og gagnaverin þar á meðal. Samhliða minni innflutningi skilar það jákvæðu framlagi utanríkisverslunar til hagvaxtar. Krónan hefur verið sterk og við eigum von á svo verði áfram, þó það sníði útflutningsgreinunum þröngan stakk.  

Horfurnar eru þokukenndari en oft áður þar sem hrávöruverð er á fleygiferð, staðan í alþjóðasamskiptum viðkvæm og órói á vinnumarkaði. Hvernig sem fer teljum við að hagkerfið standi á traustum grunni og að það vori á ný, þótt leysingarnar kunni að koma seint. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira