21.09.2026

Það er gott að vera í viðskipt­um hjá Arion

Á síðustu misserum höfum við hjá Arion lagt sífellt meiri áherslu á að umbuna viðskiptavinum okkar fyrir að nýta sér fjölbreytta þjónustu bankans og dótturfélaga hans, Varðar og Stefnis.  

Tvö verkefni standa þar sérstaklega upp úr: Arion fríðindi og Arion framtíð

Arion fríðindi

Fríðindakerfið okkar, Arion fríðindi, var kynnt til leiks fyrir einu ári og virkar þannig að við umbunum viðskiptavinum okkar með auknum hætti eftir því sem þeir nýta sér fleiri þjónustuþætti innan samstæðunnar. Fríðindin skiptast í nokkur stig: Framtíð (23 ára og yngri), Stig 1, Stig 2, Stig 3 og Premía.  

Meðal helstu fríðinda eru: 

  • Fríðindareikningurinn sem er með ein bestu vaxtakjör á Íslandi – og vextirnir eru greiddir út vikulega. Sparnaðurinn vex því hraðar en á öðrum reikningum. 

  • Endurgreiðsla af tryggingum. Viðskiptavinir Arion sem eru með heimilisvernd hjá Verði geta fengið allt að 7% endurgreiðslu af tryggingunum sínum. 

Þetta er hluti af stærri hugsun hjá Arion um að sameina fjármál og tryggingar á einum stað. Þannig njóta viðskiptavinir okkar raunverulegs ávinnings af því að beina viðskiptum sínum á sama stað.  

Lykillinn að þessu öllu er Arion appið. Þar er nánast öll þjónusta orðin aðgengileg á einum og sama staðnum, s.s. fríðindi, sjóðir og hlutabréf, lífeyrissparnaður og tryggingar hjá Verði. Arion appið er besta bankaappið að mati viðskiptavina bankanna tíunda árið í röð samkvæmt könnun Maskínu. Það er risastór viðurkenning að fólk telji appið okkar það besta, óháð því hvar það er sjálft í viðskiptum, og hvetur okkur til að halda áfram að gera enn betur. 

Arion framtíð 

Við kynntum Arion framtíð til leiks í sumar en um er að ræða sérstök fríðindi fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 24 ára, sem hönnuð voru í samráði við ungt fólk. Viðtökurnar hafa verið góðar og  ungum viðskiptavinum í Arion fríðindum hefur fjölgað um rúm 20% síðan við hófum leik. 

Hvers vegna byrjuðum við með Arion framtíð? 

Því er auðsvarað. Fólk á aldrinum 18-24 ára er að stíga sín fyrstu skref í fjármálum –  flytjast að heiman, hefja nám, stíga út á vinnumarkað, kaupa fyrstu íbúðina. Okkur langaði að styðja sérstaklega vel við bakið á ungu fólki á slíkum tímamótum, meðal annars með aðgengilegri og vandaðri fjármálafræðslu. Við þetta tvinnum við svo alls konar fríðindi sem raunverulega nýtast og vekja áhuga ungs fólks, s.s. Hoppið og Launabónusinn. 

Launabónusinn er nýjung á íslenskum markaði – og er Arion fyrsti bankinn til að bjóða uppá slíkt.  

Arion framtíð snertir á öllu því sem Arion hefur upp á að bjóða: fjármálaþjónustu, tryggingum og lífeyrismálum. Þannig er Arion framtíð ekki einungis safn af stökum fríðindum heldur heildstæð þjónusta sem fylgir ungu fólki inn í fullorðinsárin.

Hvað felst í Arion framtíð?

Meðal þess sem er í boði fyrir ungt fólk: 

  • Launabónus – allt að 35.000 kr. á ári beint inn á reikning. 

  • Frítt Hopp yfir sumarið – þau sem skráðu sig strax í Arion framtíð fengu frítt í Hopp yfir sumarið 2026, frá því að við fórum í loftið með fríðindin þann 10. júní og út ágústmánuð.  

  • Þrjár tryggingar í einum pakka – enginn veit hvenær eitthvað óvænt kemur upp á og því er mikilvægt að vera tryggður strax frá unga aldri. Heilsupakki Varðar sameinar þrjár tryggingar – líf-, sjúkdóma- og örorkutryggingu – í einn mánaðarlegan pakka, á verði sem er sambærilegt við eina áskrift að streymisveitu.  

  • Bláa kortið, sem veitir afslátt í bíó, sund og hjá World Class. 

  • Debetkort – ekkert ársgjald og engin færslugjöld.

  • Sveigjanlega lánamöguleika fyrir námsmenn – við komum til móts við námsmenn með ýmsum lánaleiðum eftir því hvað hentar hverjum og einum. 

Fræðslan er svo sérstakur hornsteinn Arion framtíðar. Fyrsta viðfangsefnið sem varð fyrir valinu var einmitt spurningin sem brennur á svo mörgum ungmennum: Hvernig eignast ég mitt eigið heimili? Þar förum við yfir helstu hugtök og ákvarðanir sem fylgja fyrstu íbúðarkaupum, allt frá því hvernig verðtryggð og óverðtryggð lán virka til þess hvað höfuðstóll og vextir þýða í raun. Markmiðið er að ungt fólk geti kynnt sér þessi mál á mannamáli, án flókins orðfæris, svo að það eigi auðveldara með að taka upplýstar ákvarðanir þegar kemur að stóru skrefunum. 

Skráning er einföld og fer fram í Arion appinu, undir liðnum Fríðindin mín. 

Af hverju skiptir þetta máli?

Bæði Arion fríðindi og Arion framtíð endurspegla sömu hugsun: að umbuna viðskiptavinum fyrir viðskiptin og byggja upp langtímasamband sem byggist á gagnkvæmum ávinningi.  

Það skiptir máli að temja sér snemma góðar fjármálavenjur. Með því að sameina hagnýt fríðindi og aðgengilega fræðslu vill Arion auðvelda ungu fólki að gera einmitt það. 

Niðurstaðan er kerfi þar sem viðskiptavinir, hvort sem þeir eru að stíga fyrstu skref sín eða hafa verið í viðskiptum um árabil, finna ávinninginn af því að vera í viðskiptum hjá Arion. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
21. september 2026

Það er gott að vera í viðskiptum hjá Arion

Á síðustu misserum höfum við hjá Arion lagt sífellt meiri áherslu á að umbuna viðskiptavinum okkar fyrir að nýta sér fjölbreytta þjónustu bankans og dótturfélaga hans, Varðar og Stefnis. Tvö verkefni standa þar sérstaklega upp úr: Arion fríðindi og Arion framtíð

Lesa meira
18. september 2026

10.000 konur mætt á viðburði Konur fjárfestum

„Í rúm tvö ár höfum við hjá Arion unnið skipulega að stóru samfélagslegu verkefni sem nefnist Konur fjárfestum. Markmiðið hefur verið skýrt: Að fjölga þeim konum sem taka þátt í fjárfestingum, efla þekkingu kvenna á fjármálum með áhugaverðri fræðslu og styðja konur í því að ná fjárhagslegu sjálfstæði.“ 

Lesa meira
17. september 2026

Hægt að fjárfesta í erlendum vísitölusjóðum í Arion appinu

Nú er hægt að eiga viðskipti með erlenda vísitölusjóði beint í Arion appinu og netbankanum. Með þessari nýjung fæst greiður aðgangur að sjóðum sem starfa á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og tækifæri til að dreifa áhættu í sparnaði með hagkvæmum og einföldum hætti.

Lesa meira