06.07.2015

Nýr framkvæmda­stjóri EFÍA

Snædís Ögn Flosadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eftirlaunasjóðs félags íslenskra atvinnuflugmanna, EFÍA.

Snædís hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 2006 og á eignastýringarsviði Arion banka frá árinu 2008, lengst af sem gæða- og verkefnastjóri. Nú síðast starfaði Snædís sem sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta. Í störfum sínum hefur Snædís öðlast víðtæka reynslu af rekstri og stýringu lífeyrissjóða.

Snædís er með B.Sc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun. Snædís er jafnframt að leggja lokahönd á rannsóknarverkefni til meistaraprófs í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands en verkefni hennar fjallar um áhættustýringu í rekstri lífeyrissjóða. Maki Snædísar er Jökull Ingvi Þórðarson og eiga þau þrjú börn.

Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna, EFÍA, var stofnaður árið 1974 og var reistur á grunni Lífeyrissjóðs FÍA. EFÍA er sjálfstæður sjóður en Arion banki annast rekstur og eignastýringu lífeyrissjóðsins á grundvelli rekstrarsamnings.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira