19.09.2016

Nýr stjórnar­maður hjá Arion banka

Á hlutahafafundi Arion banka sem fram fór fimmtudaginn 15. september var samþykkt að fjölga stjórnarmönnum bankans um einn, úr sjö í átta. Á fundinum var jafnframt kjörinn nýr stjórnarmaður, John P. Madden, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi.

Stjórn Arion banka skipa nú: Benedikt Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Guðrún Johnsen, John P. Madden, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Monica Caneman og Þóra Hallgrímsdóttir. Kirstín er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.

John P. Madden

John P. Madden er framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi ehf. Hann hefur starfað hjá BC Partners, Arle, ICG frá árinu 2014. Á árunum 1998 til 2013 starfaði Madden hjá Arcapita, fyrst í Bandaríkjunum en síðar á Bretlandi. Þar áður starfaði hann fyrir Lehman Brothers. Madden er með BA gráðu í hagfræði frá Williams College.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira