23.11.2015

Nýtt úti­bú Arion banka opn­að á Siglu­firði

Í dag opnaði Arion banki nýtt útibú við Túngötu 3 á Siglufirði. Nýja útibúið er byggt á grunni starfsemi Sparisjóðs Siglufjarðar. Einnig hefur útibú Sparisjóðs Skagafjarðar á Sauðárkróki sameinast starfsemi útibús Arion banka á staðnum. Sú fjarvinnsla sem AFL sparisjóður sinnti fyrir Arion banka á Siglufirði er nú hluti af viðskiptaumsjón og lífeyrisþjónustu bankans. Þar með er samruna AFL sparisjóðs og Arion banka lokið.

Alls starfa um 30 manns hjá Arion banka í Fjallabyggð.

Oddgeir Reynisson ráðinn útibússtjóri í Fjallabyggð

Oddgeir Reynisson hefur verið ráðinn útibússtjóri Arion banka í Fjallabyggð, en Arion banki starfrækir útibú bæði á Siglufirði og Ólafsfirði. Oddgeir er viðskiptafræðingur að mennt. Síðastliðin átta ár starfaði hann sem rekstrarstjóri hjá fjarskiptafyrirtækinu NOVA og árunum 2001-2007 sinnti hann ýmsum stjórnunarstörfum hjá Emblu, Medcare og Flögu. Á árunum1995-2001 var Oddgeir fjármálastjóri hjá Nesskipum. Oddgeir er kvæntur Herdísi Guðmundsdóttur og saman eiga þau þrjú börn. Fjölskyldan mun setjast að á Siglufirði, þaðan sem Herdís er ættuð.

Helgi Jóhannsson, sem verið hefur útibússtjóri Arion banka í Ólafsfirði frá árinu 2012, þegar bankinn sameinaðist Sparisjóði Ólafsfjarðar, mun gegna starfi þjónustustjóra Arion banka á Ólafsfirði. Þjónustustjóri bankans á Siglufirði er Guðrún Sif Guðbrandsdóttir, sem áður starfaði hjá Sparisjóði Siglufjarðar.

Svæðisstjóri Arion banka á Norður- og Austurlandi er Jónas Björnsson.

Rúmlega 80 starfsmenn hjá Arion banka á Norður- og Austurlandi

Starfsemi Arion banka á Norður- og Austurlandi er umtalsverð og er bankinn með stærri atvinnurekendum á svæðinu. Arion banki starfrækir nú fimm útibú á Norðurlandi; á Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri og tvö í Fjallabyggði, þ.e. á Siglufirði og Ólafsfirði. Að auki rekur bankinn útibú á Egilsstöðum. Arion banki starfrækir einnig fjarvinnslu á Siglufirði og Akureyri, m.a. í tengslum við lífeyrisþjónustu bankans. Alls vinna rúmlega 80 starfsmenn hjá Arion banka á Norður- og Austurlandi.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Oddgeir Reynisson, útibússtjóri Arion banka í Fjallabyggð og starfsfólk Arion banka á Siglufirði sem tók á móti viðskiptavinum í morgun í hinu nýja útibúi við Túngötu 3.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira