24.10.2016

Opn­unar­tími úti­búa á kvenna­frí­dag­inn

Arion banki styður framtak þeirra kvenna sem munu leggja niður störf klukkan 14:38 mánudaginn 24. október til að vekja athygli á kynbundnum launamun og því óréttlæti sem í honum felst. Arion banki leggur áherslu á jafnréttismál og hefur hlotið Jafnlaunavottun VR.

Opnunartími útibúa Arion banka á kvennafrídaginn verður með eftirfarandi hætti:

Höfuðborgarsvæðið
Útibú Arion banka í Borgartúni, Kringlunni og Garðabæ verða opin en útibúin á Höfða, í Vesturbæ, Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ loka klukkan 14:00.

Vesturland
Útibú Arion banka í Stykkishólmi, Grundarfirði og Borgarnesi loka klukkan 14:00.

Norðurland
Útibú Arion banka á Blönduósi og á Siglufirði verða opin. Útibúin á Akureyri og í Ólafsfirði verða einnig opin en þjónustan verður skert. Útibú Arion banka á Sauðárkróki lokar klukkan 14:00.

Austurland
Útibú Arion banka á Egilsstöðum verður opið en þjónustan verður skert, ekki verður boðið upp á gjaldkeraþjónustu.

Suðurland
Útibú Arion banka í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri verða opin en útibú bankans á Hellu, í Hveragerði og á Selfossi loka klukkan 14:00.

Þjónustuver bankans verður opið til kl. 17:00, sími þjónustuvers er 444-7000.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira