28.04.2016

Ráð­stefna í Hörpu um þró­un þjóða út frá samfélags­legum þátt­um

Arion banki er styrktaraðili ráðstefnu sem fram fer í Hörpu í dag undir yfirskriftinni Social Progress – What works?

Ísland er mjög ofarlega á lista yfir þær 133 þjóðir þar sem hin svokallaða SPI vísitala er mæld eða í 4. sæti. Vísitalan er nýlegur alþjóðlegur mælikvarði á þróun þjóða þar sem eingöngu er tekið tillit til samfélagslegra þátta, svo sem öryggi borgara, heilsu, umhverfismál og tækifæri einstaklinga, en ekki hagrænna þátta eins og almennt gerist þegar verið er að meta frammistöðu ríkja.

Michael Porter, hagfræðingur og prófessor við Harvard Business School, er einn af upphafsmönnum þessa nýja mælikvarða og verður hann einn af lykilfyrirlesurum dagsins. Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka, verður meðal fyrirlesara en erindið hennar, ,,Saman látum við góða hluti gerast“, fjallar um velgengni Íslands hvað varðar þróun samfélagsins.
Þá mun Michael Green, ritstjóri og forstöðumaður Social Progress Imperative á heimsvísu, vera með erindi, ásamt þeim Matthew Bishop, ritstjóra alþjóðamála hjá The Economist og Mörthu Minow, deildarforseta lagadeildar Harvard háskóla, auk fjölda annarra þekktra vísinda- og fræðimanna á sviði samkeppnishæfi þjóða og stefnumótunar fyrirtækja.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira