11.10.2016

Ráð­stefnan um straum­lín­u­stjórn­un í Arion banka vel sótt

Fimmtudaginn 6. október hélt Arion banki ráðstefnu um straumlínustjórnun (e. Lean Management) í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19.

Frá árinu 2012 hefur bankinn unnið samkvæmt hugmyndafræði straumlínustjórnunar sem snýst í meginatriðum um að bæta þjónustu, koma í veg fyrir sóun og auka afköst og skilvirkni. Markmið ráðstefnunnar var að deila okkar reynslu, hvað hefur gengið vel og hvað má læra af vegferðinni. Ráðstefnan var vel sótt og virtust ráðstefnugestir áhugasamir.

Pétur Arason, rekstrarverkfræðingur og Global Innovation Program Manager hjá Marel, var gestur á ráðstefnunni:

,,Gríðarlega mikil og flott vinna verið unnin hjá Arion og þótt margir sigrar hafi unnist þá „erum við rétt að byrja“ eins og þau segja sjálf, enda endalaust ferðlag eins og við vitum… En vel gert Arion og vonandi er þetta hvatning til annarra íslenskra fyrirtækja og stjórnenda í íslensku viðskiptalífi að innleiða Lean af alvöru!"

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira