21.04.2015

Reit­un hef­ur upp­fært láns­hæf­is­mat á Arion banka hf.

Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka hefur hækkað í i.A2 með stöðugum horfum og lánshæfismat sértryggða skuldabréfa bankans hefur hækkað í hæstu mögulegu einkunn eða i.AAA með stöðugum horfum. Lánshæfismat bankans var áður i.A3 með stöðugum horfum.

Í greiningu Reitunar kemur fram að áframhaldandi bati í eignagæðum, hækkandi eiginfjárþáttur A, góð arðsemi af kjarnastarfsemi og ágætar hagvaxtarhorfur séu meginástæður hækkunar á lánshæfiseinkunn. Þá hefur úrvinnsla vandræðalána gengið samkvæmt áætlun og gæði lánasafnsins aukist til muna auk þess sem hlutfall íbúðalána í lánasafni hefur hækkað og veðstaða áfram batnað samhliða hækkandi fasteignaverði.

Horfur eru á að lánshæfi bankans gæti batnað enn frekar þegar óvissuþættir í rekstrarumhverfinu skýrast betur, með bættum gæðum útlánasafnsins og stöðugleika í rekstri.

Lánshæfismat Reitunar apríl 2015

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira