04.11.2016

Samfélags­lega ábyrg­ar fjár­festingar - Snæ­dís Ögn flutti er­indi í London

Snædís Ögn Flosadóttir frá eignastýringu Arion banka var þátttakandi á tveimur ráðstefnum í London í síðustu viku þar sem aðal umfjöllunarefnið var samfélagslega ábyrgar fjárfestingar með tilliti til umhverfis, samfélagsins og stjórnarhátta fyrirtækja.

Annars vegar var um að ræða ráðstefnu á vegum Financial Times og hins vegar IRN (International Research Networks). Báðar ráðstefnurnar voru vel sóttar af starfsfólki lífeyrissjóða, eignastýringafyrirtækja og fjárfestingabanka ásamt því sem fjöldi gesta kom úr háskóla- og rannsóknarsamfélaginu.

Snædís fjallaði um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar hér á landi og hvernig lífeyrissjóðir í rekstri Arion banka nálgast viðfangsefnið. Tók hún dæmi af nokkrum tiltölulega nýlegum fjárfestingum sem sjóðirnir hafa ráðist í og hvaða áhrif þær fjárfestingar hafa á umhverfið og samfélagið, svo sem fjárfestingar í endurnýjanlegri orku og iðnaði sem byggir starfsemi sína á slíkri orku. Þá tók hún þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu Fincancial Times og stýrði pallborðsumræðum á ráðstefnu IRN þar sem umfjöllunarefnið var mikilvægi góðra stjórnarhátta, umboðsskyldu og fjölbreytileika í stjórnum.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Snædísi taka þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu Financial Times.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira