27.03.2015

Sér­kjör á íbúða­lánum vegna kaupa á fyrstu íbúð

Viðskiptavinir Arion banka sem festa kaup á sinni fyrstu íbúð njóta nú sérkjara á íbúðalánum.

Almennt veitir Arion banki lán fyrir allt að 80% af markaðsvirði fasteigna en viðskiptavinir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð geta nú fengið lán sem nemur 85% af markaðsvirði íbúðar sé það undir 30 milljónum króna. Að minnsta kosti fjórðungur lánsins þarf að vera óverðtryggður.

Einnig falla lántökugjöld niður þegar um kaup á fyrstu íbúð er að ræða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira