07.12.2015

Skert þjónusta í dag vegna veðurs

Vegna ofsaveðurs sem spáð er víða um land í dag verður afgreiðsla Arion banka á Kirkjubæjarklaustri lokuð í dag. Þá hefur verið tekin sú ákvörðun að loka útibúunum á Suðurlandi; Hveragerði, Selfossi, Hellu og Vík í Mýrdal, kl. 14.00. Eins og stendur er fyrirhugað að aðrir afgreiðslustaðir verði opnir til kl. 16.00, einnig í Kringlunni þar sem vanalega er opið til kl. 17.00. Þá hefur verið ákveðið að loka þjónustuverinu klukkustund fyrr en vanalega, það er klukkan 16.00 í stað 17.00.

Við hvetjum ykkur til að fara varlega og vera ekki á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Við fylgjumst vel með veðrinu og uppfærum stöðuna ef við teljum ástæðu til.

Mynd tekin af vef Veðurstofu Íslands.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira