08.03.2016

Skiss­um sam­an á laug­ar­dag­inn

Nú styttist í að HönnunarMars hefjist en formleg dagskrá hefst næstkomandi fimmtudag 10. mars og stendur til sunnudagsins 13. mars.

Laugardaginn 12. mars milli klukkan 13.00-16.00 verðum við með skemmtilegan viðburð í Borgartúni 19 sem nefnist Skissum saman. Þar gefst gestum og gangandi, tækifæri til að mæta í hús og skissa saman undir styrkri stjórn snjallra hönnuða. Öll áhöld verða á staðnum og boðið verður upp á léttar veitingar.

Skissum saman er haldið í tengslum við opnun nýrrar sýningar í höfuðstöðvunum þar sem skissur og vinnuaðferðir ólíkra hönnuða og arkitekta verða til sýnis.

Við hjá Arion banka leggjum ríka áherslu að styðja við og stuðla að hvers kyns nýsköpun. Liður í þeirri vegferð er nýundirritaður þriggja ára samningur bankans við Hönnunarmiðstöð Íslands. Samstarfið felur meðal annars í sér stuðning Arion banka við HönnunarMars, sem er einn aðalvettvangur Hönnunarmiðstöðvar til að koma íslenskri hönnun og hugviti á framfæri.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira