13.10.2015

Sölu lokið á skulda­bréfa­flokki EIK 15 1

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki Eikar fasteignafélags hf., EIK 15 1. Skuldabréfaflokkurinn er 3,3 ma.kr. að stærð, ber 3,3% fasta verðtryggða vexti, er til 30 ára og var hann seldur á pari. Útgáfan er liður í endurfjármögnun vaxtaberandi skulda Eikar samstæðunnar en í september 2015 greiddi félagið upp lán við LFEST1 sjóð í eigu Stefnis hf. sem bar 4,95% fasta verðtryggða vexti.

Stefnt er að skráningu skuldabréfaflokksins EIK 15 1 á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. og mun Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hafa umsjón með fyrirhugaðri skráningu.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf.:
"Við erum mjög ánægð með nýja skuldabréfaútgáfu Eikar fasteignafélags hf. og er þetta ánægjulegt skref í lækkun á fjármagnskostnaði félagsins. Hagstæðir vextir marka tímamót í fjármögnun Eikar fasteignafélags og endurspegla það traust sem fjárfestar bera til félagsins og rekstur þess."

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira