25.10.2016

Stand­ard & Poor’s hækk­ar láns­hæf­is­mat Arion banka

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur hækkað lánshæfismat Arion banka úr BBB- í BBB með jákvæðum horfum.

Bætt lánshæfismat endurspeglar góða stöðu íslensks efnahagslífs, bætta skuldastöðu heimila og fyrirtækja og jákvæð áhrif af frekari losun fjármagnshafta. Einnig er horft til greiðari aðgangs Arion banka að erlendum lánsfjármörkuðum og bættrar eiginfjárstöðu bankans í kjölfar sölu á hlutum í yfirteknum félögum.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Hækkun á lánshæfismati Arion banka er góður vitnisburður þess árangurs sem hefur náðst á undanförnum árum. Þá er ég bæði að vísa til uppbyggingar Arion banka, en fjárhagslegur styrkur bankans eykst jafnt og þétt, og íslensks efnahagslífs sem stendur vel um þessar mundir. Bætt lánshæfismat skiptir okkur miklu því eftir því sem lánshæfismatið er betra þeim mun fleiri alþjóðlegir fjárfestar horfa til okkar með lánveitingar í huga og á hagstæðari kjörum. Stærsti kostnaðarliðurinn í okkar starfsemi er fjármögnunarkostnaður og bætt lánshæfismat hjálpar okkur að lækka þann kostnað og bjóða viðskiptavinum okkar hagstæðari kjör.“

Arion RU October 2016

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira