21.07.2015

Stand­ard & Poor´s hækk­ar láns­hæf­is­mat Arion banka í fjár­festing­ar­flokk

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s hefur hækkað lánshæfismat Arion banka úr BB+ í BBB- með stöðugum horfum. Nýja lánshæfismatið, sem kemur í kjölfar kynningar áætlunar um afnám gjaldeyrishafta, setur bankann í fjárfestingarflokk. Nýverið hækkaði Standard & Poor‘s lánshæfismat íslenska ríkisins úr BBB- í BBB.

Lánshæfismatið endurspeglar stöðu bankans á innlendum markaði og sterka stöðu hvað varðar eigið fé, lausafé og afkomu.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það er mikilvægt fyrir okkur og okkar viðskiptavini að bankinn skuli vera kominn í fjárfestingarflokk. Bankinn hefur haft góðan aðgang að erlendri fjármögnun eins og 300 milljóna evra og 500 milljóna norskra króna skuldabréfaútgáfur bankans fyrr á þessu ári bera vott um. Hins vegar stækkar hópur mögulegra fjárfesta til muna nú þegar bankinn er kominn í fjárfestingarflokk. Þannig getum við styrkt fjármögnun bankans enn frekar með það að markmiði að lækka fjármögnunarkostnað. Aukið aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum gerir okkur betur í stakk búin til þess að þjónusta viðskiptavini okkar sem þurfa á erlendri fjármögnun að halda.“

S&P Iceland's Commercial Banks Upgraded July 2015

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira